Mig dreymir undarlega drauma þessa dagana. Ekki bara kaffiboð hjá bæjarstjórahjónunum á Bolungarvík ( sem ég þekki í raun bara pinku pons), heldur eru nú gamlir kærastar farnir að senda mér varnaðarorð í draumi.
Ég er svo sem alvön að dreyma einhvern þvætting, en þessi draumur situr eitthvað í mér. óþægilega. Kannski ég ætti að fara eftir ráðunum? Er samt svolítið smeyk um að þetta sé ekki neitt merkilegra en það sem það var; bara draumur.