StórtíðindiÞegar við komum heim úr mat hjá Ingibjörgu, Óla og Birni Rafnari (sem er núna ennþá meira hræddur við mig en áður, af því ég á það til að byrsta mig stundum), sagði Arnaldur Goði upp úr þurru að hann vildi að ég klippti hann. Jájá, hvað mikið, sagði ég. Hann gerðu merki um að hann vildi vera stutthærður og þá sagðist ég nú ekki vera besta manneskjan í verkið, enda hefði ég aldri farið í hárklippiskóla. En það var engu tauti við hann komandi, ég skildi klippa hann stutt, sem ég og gerði. Reyndar spurði hann mig á meðan á klippinu stóð, hvort ég gæti ekki bara hugsað mér að fara að skipta um skóla. Og fara í hárklippiskóla. Mér finnst það ekkert svo fráleit hugmynd, ég held að það sé ekki eins mikið um ritgerðarskrif eins og í mínum skóla. En stórfréttirnar eru að ég á svakalega flottan stutthærðann strák, með ljóta klippingu!