í dag koma ferðalangarnir mínir heim, Þorbjörg og mamma. ÞS er komin og skemmti sér svo vel að mér skilst að hún vilji einna helst búa í kofanum sem þau voru í með bekknum sínum og kennurum. Svo trúði hún mér fyrir því að hún og fjórir aðrir hefðu stolist í limbó um nóttina þegar kennararnir voru sofnaðir. Ég er af einhverjum ástæðum pínu stolt af því.
Arnaldur fór í leikskólann klyfjaður ís og kókómjólk því hann hyggst halda upp á afmælið sitt þar í dag. Þetta er svo alvarlegt mál að honum stökki bros á meðan hann kom öllu haganlega fyrir ísskápnum.
Mig langar í sumarfrí...