Það er svo mikið búið að ganga á á heimilinu síðustu daga að ég veit ekki einu sinni hvar ég á að byrja. Afmæli og afmæli og afmæli og sant hans og fyllirí og bon bon land og ég veit ekki hvað og hvað.
Alltaf þegar er búið að vera mikið um að vera fæ ég óstjórnandi þörf til að þrífa hjá mér. Það er einmitt á dagskrá í dag, en ég kem mér ekki að verki. Veit ekki hvort það sé af því að það sé skítugt heima hjá mér, eða hvort þetta sé eitthvað sálrænt. Að mér finnist ég þurfa að taka til inni í mér. Skiptir svo sem ekki öllu máli, geri eflaust hvoru tveggja.
Stefni að því að setja inn myndir frá öllu húllumhæinu eftir þrifin, en það er aldrei að vita hvað þarf að bíða lengi eftir þeim.
Annars vil ég bara þakka kærlega fyrir soninn og klykkja út með gullkorni frá því í annarri ferð í röð í hringekju í gær; "ég verð örugglega bara kringlóttur, mamma, ég er búinn að fara í svo marga hringi"!