Eyddi laugardeginum að mestu í að horfa á eitt tré og finnst þeim tíma afar vel varið. Á sunnudaginn las ég í bók, ekki var það mikið síðra, en aðeins þó.
Í dag fór ég svo á bókasafnið og glápti út um gluggann. varð ekki mjög mikið úr verki, en hafði þó opna bók fyrir framan mig, svo ég vona að eitthvað hafi náð úr henni og upp í heila.
Mér finnst þetta líf vera voðalega skrítið og ég er líklega á meðal þeirra skrítnustu sem lifið í því núna...