Tannlaus og holdsveik!Fórum í útileguna og það fór auðvitað að rigna. En samt var rosa gaman, nema að við Arnaldur komum heim annars vegar tannlaus:
og hins vegar holdsveik:
Tannleysinu var auðvitað fagnað, en holdveikin er ekki alvöru holdsveiki, heldur bara mý-grútur af mýbitum á leggjunum á mér. Frekar óþægilegt skal ég ykkur segja. En í útilegunni skemmtum við okkur konunglega, eins og áður sagði, kveiktum eld og hvaðeina...