Æi, eru þessar reddingar ekki að verða búnar? Ég er alveg búin að fá nóg af þessu og gott betur en það. Hlakka til að eiga bráðum dag þar sem ég þarf ekki að gera nokkurn skapaðan hlut.
¶ 9:08 f.h.
Comments:
eru til svoleiðis dagar? En mikið skil ég þig vel að vera orðin leið á reddingum og stússi í kringum flutninga, íbúðarkaup og allt það - það verður ljúft þegar þið verðið búin að koma ykkur fyrir og allir byrjaðir í skólanum:)
Veit ekki hvort þú fékkst póstinn en við ætlum "danska" liðið að hittast á leikvellinum Miklatúni á morgun fimmtudag kl.17.00 :D Hlakka til að sjá ykkur!
Belíf jú mí........reddingar og sjóleiðis hverfa aldrei alveg. Þú ert bara dugleg stelpa og til hamingju með íbúðina. Þú segir bara til þegar ég á að koma að taka veggfóður niður :) Danmörk verður aldrei eins.........