Vildi óska að ég hefði eitthvað að segja skemmtilegt.
Jú, auðvitað get ég sagt frá yndislegri Akureyrarferð um helgina. Við Stína vorum eins og inni í jólakorti alla helgina; umvafðar snjó og kulda og sjóðheitri vináttu. Snjórinn er svo miklu fallegri ef hann er ekki saltaður. Og líka vináttan, hana á aldrei að salta né setja í súrt.
Krakkarnir eru alveg að verða sjálfum sér líkir, eftir heimsókn umskiptinganna í janúar. En ég er samt ennþá svolítið tæp. Enda búið að ganga á allar orkubirgðir. Sjúga allt til þurrðar. Hef samt fulla trú á því að birgðirnar endurnýi sig með hækkandi sól, það bara getur ekki annað verið.