Ég elska svona morgna, þegar allt er stillt og tíminn líður ofboðslega hægt. Kaffið helst óvenjulengi heitt og morgunverðurinn er fullkominn, alveg sama hver hann er. Krakkarnir rífast ekki, af einhverri óskiljanlegri ástæðu og sólin meira að segja skín. Hárið tekur uþb. helminginn af svæðinu sem maður skilgreinir sem "sig" og kötturinn kemur stoltur inn með hvert ný veidda laufblaðið af öðru. Kannski maður vaski upp og helli sér upp á einn til...