Ég er að fara að vinna alvöru vinnu í fyrsta skipti í langan tíma og hlakka bara til. Kvíði samt líka smá fyrir; sérstaklega út af heilsufarinu; lungnaþemba og tognaður háls er ekkert endilega málið þegar maður er að fara að vera á hlaupum að bera hluti heilan dag. En ég hlít að geta harkað þetta af mér eins og mér inni er lagið.
Ég sendi baráttu kveðjur til Brelínar; það þýðir ekkert að hætta núna, stelpur, koma svo!
Svo hvet ég alla sem ekki eru í berlín né verða lokaðir inni í frímúrarahúsinu í allan dag að fara út að leika; það er svo gott.