Æi, mér leiðist svo. Þarf að gera ótal hluti en kem engu í verk. Glápi bara út í loftið og læt mig dreyma. Um ekki neitt svo sem. Er óþreyjufull. Langanafull. Full löngunar í eitthvað sem ég veit ekki hvað er. Óþolinmóð. Móð. Óð. Mig langar svo....
Langar að fara í blómakjól og spariskó og dansa heila nótt. En er eitthvað svo kallt, treysti mér ekki alveg í kjólinn. Gæti samt örugglega dansað mér til hita.
Ó, örlagadísir látið þið eitthvað fara gerast!