Seljalandsfoss var í miklum ham í dag. Rauk og fauk, skvettist og frussaðist á okkur. Frostið var svo mikið í rokinu að við vorum öll íshúðuð eftir að hafa reynt að nálgast hann.
Reyndar var allt í nágrenni við hann íshúðað; gras, klettar, tré...hvað sem var bara. En þrátt fyrir kuldann skemmtum við okkur hið besta.