Langar svo að segja frá því að ég átti yndislega helgi með krökkunum mínum. Og að ég sé alveg búin að missa það djamm- og drykkjulega séð (þ.e. hef ekki úthald, nennu eða þrek til þessara hluta). Og að ég sé orðin svolítið spennt að byrja í nýju vinnunni. Og að ég sé yfirleitt bjartsýn á framtíðina. Og að mér líði bara þokkalega vel, þrátt fyrir allt og allt og mikið álag undanfarna mánuði. Og að ég sé svo óróleg svona seinni part vinnudags að ég hafi ekki eirð í mér til að vinna meira.
En ég nenni því bara ekki...