Það er eitthvað við
Jól í skókassa sem hreyfir við mér. Í fyrra kom ÞS heim og sagði mér frá þessu verkefni og ég táraðist. Svo útbjuggum við pakka til að senda til Úkraínu. Svo í kvöld var ÞS að segja afa sínum frá þessu og ég fékk bara kökk í hálsinn aftur!
Hvílík hneisa, ég sem legg ALLT uppúr því að vera hörð og sýna engar tilfinningar. Grenjandi ár eftir ár, yfir jólapökkum!